Jökulsárlón
Árið um kring


Eftir Þorvarð Árnason

Bókin kemur út í fjórum útgáfum: íslenskri, enskri, franskri og þýskri.

Jökulsárlón á Breiðamerkursandi er einstakur staður og hefur á síðustu tíu árum eða svo orðið nokkurs konar táknmynd Íslands í augum umheimsins. Staðurinn hefur lengi verið þekktur meðal
erlendra ferðamanna og núorðið fara fáir þeirra burt frá Íslandi án þess að hafa heimsótt Lónið.

Aðdráttarafl þess er líka augljóst hverjum þeim sem þangað kemur, bæði Íslendingum og útlendingum og ótrúlega fallegar myndirnar sýna vel magnað aðdráttarafl ljónsins Þær eru teknar yfir allt árið á ólíkum tíma dagsins og sýna ótrúlegan fjölbreytileika lónsins í mismunandi veðri
og birtu.

„Jakarnir, jöklarnir og fjöllin, sjórinn, sandurinn, sólin og vindurinn – þessir þættir knýja einstakt samspil jarðfræðilegra fyrirbæra og krafta. Þetta samspil er síbreytilegt og því eru það ekki aðeins jakarnir sem eru stöðugt á hreyfingu, heldur öll ásýnd Lónsins. Við þessa kviku mynd bætist síðan lífið sjálft, því þessir sömu þættir skapa einnig skilyrði fyrir fjölskrúðugt og sérstakt lífríki“ segir höfundurinn í stuttum inngangi.

Þorvarður Árnason hefur búið á Höfn í Hornafirði frá árinu 2006. Hann er doktor í umhverfisfræðum og einnig líffræðingur og kvikmyndagerðarmaður að mennt. Þorvarður er forstöðumaður Fræðasetursins á Hornafirði og jafnframt sérfræðingur í umhverfismálum við Háskóla Íslands. Þorvarður hefur fengist við ljósmyndun og kvikmyndagerð um þriggja áratuga skeið, þegar tækifæri hefur gefist frá öðrum störfum. Hann hefur haldið þrjár einkasýningar á ljósmyndum og einnig gert nokkrar stuttmyndir.

Jökulsárlón – Árið um kring er fyrsta ljósmyndabók Þorvarðar.
Fleiri myndir eftir hann má sjá á www.thorri.is.

Innbundin
128 bls.
15,5 x 20 cm
Leiðbeinandi útsöluverð: 2990 kr.















BÓKAÚTGÁFAN OPNA ehf. / SKIPHOLTI 50 B / 105 REYKJAVÍK / SÍMI 578 9080 / KT. 501207-1010 / opna@opna.is
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is